Kvennalið Stjörnunnar leikur við Selfoss til úrslita í bikarkeppninni þann 29. ágúst
Stjarnan og Selfoss mætast í úrslitaleik kvenna í bikarkeppninni, Borgunarbikarnum, þann 29. ágúst kl. 16:00 á Laugardalsvelli.
Stjarnan leikur við Selfoss í úrslitum kvenna í bikarkeppninni, Borgunarbikarnum, 29. ágúst kl. 16:00 á Laugardalsvelli.
Selfoss sigraði Val 3-2 í undanúrslitum og Stjarnan lagði Fylki 2-1 í æsispennandi leik á Fylkisvelli. Stjarnan er ríkjandi bikarmeistari og hefur því titil að verja en Selfoss laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni í úrslitaleiknum á seinasta ári.
Það verða því Stjarnan og Selfoss sem leika úrslitaleikinn á Laugardalsvelli þann 29. ágúst, klukkan 16:00.