Jólatré frá vinabænum Asker
Á hverju ári fær Garðabær jólatré frá vinabænum Asker í Noregi. Þessi vinargjöf á sér langa hefð en í ár er það í 48. sinn sem Garðabær fær jólatré þaðan. . Að þessu sinni var jólatréð fengið úr garði íbúa í Asker og um er að ræða veglegt tré eins og sjá má á meðfylgjandi myndum með fréttinni sem voru teknar þegar tréð var fellt fyrir stuttu síðan. Svo er að vona að tréð þoli flutninginn vel og sómi sér vel á Garðatorginu fyrir framan ráðhús Garðabæjar þar sem tréð verður sett upp.
Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu laugardaginn 2. desember kl. 16 við hátíðlega athöfn. Sjá nánari upplýsingar um dagskrána hér í viðburðadagatalinu.
Vinabæjasamstarf Garðabæjar
Garðabær hefur átt í vinabæjasamstarfi við sveitarfélög á Norðurlöndunum frá árinu 1966. Vinabæir Garðabæjar eru Asker í Noregi, Rudersdal í Danmörku, Eslöv í Svíþjóð og Jakobstad í Finnlandi. Hér á vef Garðabæjar má lesa meira um vinabæjasamstarfið.