Vorhreinsun lóða 15. - 26. maí
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður dagana 15.-26. maí nk. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður dagana 15.-26. maí nk. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu bæjarins því að vorhreinsun lokinni verða lóðarhafar sjálfir að flytja garðúrgang í endurvinnslustöðvar SORPU og/eða nýta safnkassa á lóðum. Greinar og tré sem sett eru við lóðamörk verða fjarlægð á sömu dögum.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða dagsetningar gilda fyrir stök hverfi í bænum.
Hreinsun á garðúrgangi:
15.-17. maí | Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Ásar, Grundir, Sjáland, Arnarnes, Akrar, Vífilsstaðir, Urriðaholt |
18.-22.. maí | Tún, Mýrar, Garðatorg, Móar, Byggðir, Lundir, Búðir, Bæjagil, Hæðahverfi, Hnoðraholt |
23.-26. maí | Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar og v. Álftanesveg |