Snyrtilegar lóðir 2023
Umhverfisnefnd óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2023.
Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og auglýsir eftir ábendingum frá bæjarbúum um:
- Snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis
- Snyrtilegar lóðir fyrirtækis
- Snyrtileg opin svæði
- Snyrtilega götu og
- Framlag til umhverfismála
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.
Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is fyrir 9. ágúst 2023.