9. apr. 2024

Vöxtur og uppbygging einkenna ársuppgjör Garðabæjar

Afkoma jákvæð við krefjandi aðstæður

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2023 var lagður fram á fundi bæjarráðs 9. apríl 2024.

Rekstrarniðurstaða Garðabæjar var jákvæð um 1.642 millj. kr. fyrir A og B hluta, en útkomuspá skv. fjárhagsáætlun 2023 gerði ráð fyrir 1.696 m.kr. jákvæðum rekstrarafgangi á árinu 2023. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2023 nam 26.778 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Rekstrargjöld námu samtals 23.613 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 22.837 m.kr. Frávikið er um 3%, en verðbólga á árinu var um 8% eða um 3% yfir þjóðhagsspá sem lögð var til grundvallar við samþykkt áætlunarinnar.

„Miklar framkvæmdir, háir vextir og verðbólga og á heildina litið afar krefjandi rekstrarumhverfi einkenna ársreikninginn fyrir árið 2023. Í ljósi þess er jákvæð afkoma ánægjuefni. Við erum þó mjög meðvituð um að grunnrekstur bæjarins þarf að batna. Viðamiklar hagræðingaraðgerðir sem komu fram í fjárhagsáætlun ársins 2024 eru því afar þýðingarmiklar. Garðabær er gott og sterkt samfélag sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum og við ætlum okkur að verja traustan fjárhag bæjarins,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

Miklar framkvæmdir og hóflegar skuldir

Á árinu voru tekin langtímalán að fjárhæð 4.000 m.kr. og greidd niður lán að fjárhæð 1.702 m.kr. Alls námu framkvæmir ársins 8.865 m.kr. þar af námu framkvæmdir í A hluta 7.547.m.kr. Helstu framkvæmdir ársins voru til skólabygginga og skólalóða samtals um 5.790 m.kr., til vatns- og fráveituframkvæmda 1.074 m.kr. og til gatnagerðar, hljóðvistar og stígagerðar 530 m.kr., auk fjölmargra annarra smærri verkefna.


Kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 109%. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 5,6% og fjárfesting ársins nam 34% af rekstrartekjum. Útsvar sem hlutfall af heildarrekstrartekjum nam 54%. Aðrar tekjur námu 30% af heildarrekstrartekjum eða sama hlutfall og árið 2022. Staða skammtímaskulda er óvenju há í árslok 2023 en það skýrist einkum af ógreiddum byggingarréttargjöldum á uppgjörsdegi og óinnheimtum gatnagerðartekjum vegna nýrra hverfa sem eru í uppbyggingu. Á næstu misserum munu gatnagerðartekjur skila sér af auknum þunga. Samkvæmt Hagstofu Íslands voru íbúar í Garðabæ 19.088. þann 1. janúar sl. og hafði fjölgað um 3,1% á árinu 2023.

Uppbygging fram undan samhliða byggingu nýrra hverfa

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á liðnum árum í Garðabæ og enn frekari uppbygging er fyrirséð á næstu árum. Traust fjárhagsstaða er undirstaða þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta þjónustu við fjölgun nýrra íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa, meðal annars á Álftanesi, á Hnoðraholti og í Vetrarmýri.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti samhljóða við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024 að hækka álagningarhlutfall útsvars úr 13.92% í 14,71% en jafnframt lækkaði tekjuskattur ríkisins um 0,23%. Áfram er álagningarhlutfall útsvars í Garðabæ með því lægsta meðal stærri sveitarfélaga landsins. Að auki var ráðist í víðtækar aðgerðir, sem skila eiga 500 m.kr. hagræðingu í rekstri. Ráðstöfunin er gerð til að styrkja enn frekar rekstur sveitarfélagsins og mæta kröfum um áframhaldandi framúrskarandi þjónustu.

Umfangsmiklar endurbætur hafa átt sér stað á skólahúsnæði á síðustu misserum með stórbættri aðstöðu fyrir börn og starfsmenn. Auk þess sem lokið er byggingu nýs leikskóla við Holtsveg í Urriðaholti sem tók til starfa í mars sl. og einnig er verið að ljúka framkvæmdum við annan áfanga Urriðaholtsskóla sem tekin verður að fullu í notkun á næstu vikum. Útboð þriðja áfanga skólans þar sem gert er ráð fyrir íþróttasal og innisundlaug ásamt tilheyrandi kennslurýmum hefur verið auglýst.

Í þriggja ára áætlun sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 7. desember 2023 er lögð áhersla á áframhaldandi endurbætur á skólahúsnæði auk mikillar uppbyggingar á nýjum skóla- og íþróttamannvirkjum. Mikilvægar veituframkvæmdir eru í undirbúningi en dregið verður úr ýmsum öðrum framkvæmdum til að mæta aðhaldskröfum og hagræðingu.