Hnoðraholt – 1. áfangi-Gatnagerð og lagnir - Eftirlit

23. mar. 2022

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Hnoðraholt – 1. áfangi -Gatnagerð og lagnir - Eftirlit.

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Hnoðraholt – 1. áfangi -Gatnagerð og lagnir - Eftirlit

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, Veitur, Ljósleiðarann og Mílu með útboðsverkinu: Hnoðraholt – 1. áfangi. Gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er m.a. um að ræða gatna- og stígagerð, bílastæði, lagnavinnu við fráveitu-, hitaveitu-, vatns- og rafmagnslagnir.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2023. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 15. nóvember 2023.

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is, frá og með miðvikudegi 23. mars.

Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, mánudaginn 4. apríl 2022 klukkan 11.00.

Útboðsgögn