Eskiás.
9.11.2021
Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar þann 2. september 2021 samþykkti bæjarstjórn samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað með umsögn sveitarstjórnar.
Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 8. nóvember 2021 nr. 1247/2021 Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingareitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir inngarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.