Álftanesskóli
Grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk

Álftanesskóli
Um Álftanesskóla
Nýr vefur Álftanesskóla er í þróun og verður tekinn í notkun síðar á árinu.
Fyrsti áfangi Álftanesskóla var tekinn í notkun haustið 1978. Fyrir þann tíma var skólahald á Bessastöðum frá 1880, Bjarnastaðaskóli starfaði frá 1889 til 1978, og var til húsa að Bjarnastöðum. Jafnhliða fjölgun íbúa og nemenda hefur skólinn stækkað. Frá haustinu 1998 hefur Álftanesskóli verið einsetinn.
Í dag er Álftanesskóli einsetinn, heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1. – 10. bekk. Skólasafnið og Bókasafn Álftaness/Garðabæjar eru rekin sameiginlega í skólahúsinu. Eftir að skóladegi nemenda í 1. – 4. bekk lýkur er boðið upp á síðdegisvistun, Frístund. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá, skólastefnu sveitarfélagsins og skólanámskrá skólans.
- Á skólaárinu 2026-2027 eru 379 nemendur og um 75 starfsmenn.
- Skólinn opnar 7:45 og kennsla hefst 8:15/8:25, henni lýkur 13:15/14:00 eða síðar hjá þeim sem eru í valgreinum.
Hagnýtar upplýsingar
Opnunartími skrifstofu
Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 07:45-15:30
Föstudaga frá kl. 07:45-14:00
Listi yfir starfsfólk Álftanesskóla sem og allt starfsfólk Garðabæjar.




