Beint í efni

Um Sjálandsskóla

Nýr vefur Sjálandsskóla er í þróun og verður tekinn í notkun síðar á árinu.

Sjálandsskóli í Garðabæ tók til starfa haustið 2005. Sjálandsskóli er einsetinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nærhverfi skólans er: Sjáland, Ásar, Grundir og Nes og markast það að Hafnarfjarðarvegi í suður, Gálgahrauni í vestur, Arnarnesvogi í norður og Kópavogi í austur. Skipulag skólans er í samræmi við grunnskólalög og aðalnámskrá.

  • Einkunnarorð skólans eru: Að vilja og virða
  • Á starfstíma nemenda opnar skólabyggingin klukkan 7.45 en skóladagurinn hefst kl. 8:30. Kennslu lýkur á mismunandi tímum eftir árgöngum. Eftir að skóladegi lýkur býðst nemendum lengd viðvera sem er starfrækt af tómstundaheimili skólans, Sælukoti.
  • Hver nemandi hefur umsjónarkennara sem fylgist náið með námi, líðan og þroska hans. Umsjónarkennari er tengiliður milli heimila og skóla og ber ábyrgð á því samstarfi af hálfu skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Opnunartími skrifstofu

 Mánudaga-fimmtudaga kl. 07:45 -16:00
 Föstudaga  kl. 08:00 -15:00

Forföll nemenda

Forráðamenn tilkynna forföll nemenda fyrir upphaf skóladags í gegnum upplýsingakerfið Mentor, til ritara skólans í síma 590-3100 eða á netfangið sjalandsskoli@sjalandsskoli.is.

Stjórnendur

Skólastjóri er Sesselja Þóra Gunnarsdóttir

Aðstoðarskólastjóri er Ósk Auðunsdóttir