Þriðjudagsklassík 2019
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Samantekt fyrir tónleikaröðina 2019
Greint var frá þriðju og síðustu tónleikunum í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík sem er haldin í samstarfi við Ingibjörgu Guðjónsdóttur listrænan stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á tónleikunum 12. mars sl. steig tónlistarhópurinn UMBRA á svið í sal Tónlistarskóla Garðabæjar og flutti þar m.a. eigin útsetningar á íslenskum þjóðlögum.
Formaður sagði frá fundi með Ingibjörgu Guðjónsdóttur þar sem rætt var um framhald tónleikaraðarinnar og ætlunin er að gera formlegan samning þar um til næstu ára.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Farið yfir hvernig tókst til á tónleikunum 12. febrúar sl.
Þriðjudaginn 12. febrúar sl. voru tónleikar í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík þar sem þær Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari fluttu frönsk tónverk í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Farið var yfir hvernig tókst til. Þriðju og síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 12. mars nk. þegar tónlistarhópurinn UMBRA kemur fram.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Farið yfir hvernig tókst til á fyrstu tónleikunum og tónleikar framundan kynntir.
Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík hófst á ný þriðjudaginn 8. janúar sl með tónleikum Maríu Magnúsdóttur núverandi bæjarlistmanni í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Með Maríu á tónleikunum léku þau Sara Mjöll Magnúsdóttir á píanó og Sigmar Þór Matthíasson á bassa. Farið var yfir hvernig tókst til. Tvennir tónleikar í tónleikaröðinni eru framundan þriðjudaginn 12. febrúar og þriðjudaginn 12. mars. Þetta er í sjötta sinn sem menningar- og safnanefnd stendur að tónleikaröðinni en listrænn stjórnandi frá upphafi er Ingibjörg Guðjónsdóttir. Að þessu sinni er Þriðjudagsklassík í samstarfi við KÍTÓN, félag kvenna í tónlist.