Beint í efni

Mengunarmælingar 2022

Málsnúmer 2207235

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

6 (22-26). fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

5 (22-26). fundur

Finnur Ingimarsson frá Náttúrufræðistofnun Kópavogs kynnti rannsókn sem farið var í við ylströndina á sjálandi til að kanna orsök hugsanlegrar mengunar. Þar hefur ítrekað orðið vart við brák á sjónum af óþekktum uppruna og höfðu kajakræðarar orðið hennar varir og tilkynnt. Meginniðurstöður þessara athugana eru þær að mestar líkur séu á að froðan myndist við öldurót vegna uppleystra lífrænna leifa, próteina og fitu. Svona froðumyndun er algeng, lífið er allt í hringrás, lífverur fæðast og vaxa og þær deyja og brotna niður, rotna, fyrir tilstilli niðurbrotsensíma og örvera. Við niðurbrotið leysast prótein og fita úr vefjum lífveranna og við hreyfingu eins og öldurót draga loftbólur þessi efni út í froðu eða skán sem leggst á yfirborð vatnsins. Við Ylströndina er frekar skýlt og væntanlega verður því meira vart við skán en froðu. Á lygnum dögum sérstaklega í logni eða ef vindur er vestanstæður getur þetta safnast upp á staðnum.
Páll Stefánsson heilbrigðisfulltrúi kynnti fyrir nefndinni starfsemi heilbrigðiseftirlitsins.
Mengunarmælingar lagðar fram.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að Garðabær eignist færanlega loftgæðastöð líkt og önnur sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

2 (22-26). fundur

Lagt fram.