Kumlamýri 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
34. (2087). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ragnhildi H. Heiðberg, kt. 010365-3929, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 3.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
7. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir parhúseingarinnar Kumlamýri 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn þá bendir skipulagsstjóri á að hávaxinn gróður meðfram lóðarmörkum eins og hann er sýndur á framlögðum útlitsuppdráttum er ekki í samræmi við deiliskipulag en þar segir m.a. í grein 5.3.13. í greinargerð að á þeim hluta lóðar sem snýr að opnum svæðum skuli aðeins gera ráð fyrir runnagróðri. Því skal annaðhvort breyta útlitsteikningu eða sækja um breytingu deiliskipulags hvað þetta ákvæði varðar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi útfærslu á hæð langveggja og heildarstærð þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað þessi atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.