Beint í efni

38. fundur

07.12.2017
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

38. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

Barnaskóli Hjallastefnunnar

07.12.2017

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Margrét Harðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Elísa Ösp Valgeirsdóttir - fulltrúi kennara
  • Andrea Róbertsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1705297

01

Hagir og líðan ungs fólks í Garðabæ 5.-7. bekkur 2017

Niðurstöður rannsóknar R&G lagðar fram til kynningar. Rætt um foreldrarölt, rafrettur o.fl. Skóladeild falið að taka saman minnisblað yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar þar sem tilteknir eru verndandi þættir og helstu áskoranir varðandi hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ. Skólanefnd tekur undir ályktanir sem fram hafa komið svo sem frá UMFÍ varðandi mikilvægi þess að sett séu sem fyrst lög um sölu og notkun rafretta.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1711138

02

Persónuvernd - innleiðing á nýrri löggjöf

Málsnúmer 1701358

03

Kjarasamningur grunnskólakennara - bókun 1

Samantekt Sambandsins lögð fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1709080

04

ímyndarvinna kennara

Sagt frá samræðum við kennara og hugmyndum að næstu verkefnum.

Málsnúmer 1712035

05

Kynning á starfi Barnaskóla Hjallastefnunnar

Skólanefnd fagnar því að fá að kynnast skólanum og starfinu sem þar fer fram með þessum hætti.