Beint í efni
IS

Útskriftir í Álftanesskóla 2026

Þriðjudaginn 9. júní er útskrift hjá nemendum í 10. bekk, hún fer fram í hátíðarsal skólans kl. 17:00. Áætlað er að samkoman standi til kl. 18:30 og eru foreldar/forráðamenn þeirra velkomnir í útskriftina.

Miðvikudaginn 10. júní er skólaslit hjá nemendum í 1. - 9. bekk á eftirfarandi tímum:

  • 1. - 4. bekkur kl. 9:30
  • 5. - 9. bekkur kl. 10:00

Að loknum skólaslitum í 1. - 9. bekk er farið í heimastofu með umsjónarkennara þar sem nemendur fá afhentan vitnisburð skólaársins og kveðja.

Frístund er lokuð miðvikudaginn 10. júní.

Opnunartími skrifstofu Álftanesskóla sumarið 2026 er eftirfarandi:

11. til 16. júní er skrifstofan lokuð vegna námsferðar starfsfólks.

18. – 19. júní er opið frá kl. 10:00-14:00

22. júní til 14. ágúst er lokað vegna sumarleyfa

17. til 21. ágúst er opið frá kl. 10:00 til 14:00

Frá 24. ágúst hefst vetrartími skrifstofu. Þá er hún opin frá kl. 7:45 til 15:30 alla daga vikunnar nema á föstudögum lokar skrifstofa kl. 14:00.

Hægt er að senda skólanum tölvupóst á netfang skólans alftanesskoli@alftanesskoli.is

Um Álftanesskóla

Nýr vefur Álftanesskóla er í þróun og verður tekinn í notkun síðar á árinu.

Fyrsti áfangi Álftanesskóla var tekinn í notkun haustið 1978. Fyrir þann tíma var skólahald á Bessastöðum frá 1880, Bjarnastaðaskóli starfaði frá 1889 til 1978, og var til húsa að Bjarnastöðum. Jafnhliða fjölgun íbúa og nemenda hefur skólinn stækkað. Frá haustinu 1998 hefur Álftanesskóli verið einsetinn.

Í dag er Álftanesskóli einsetinn, heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1. – 10. bekk. Skólasafnið og Bókasafn Álftaness/Garðabæjar eru rekin sameiginlega í skólahúsinu. Eftir að skóladegi nemenda í 1. – 4. bekk lýkur er boðið upp á síðdegisvistun, Frístund. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá, skólastefnu sveitarfélagsins og skólanámskrá skólans.

  • Á skólaárinu 2025-2026 eru 387 nemendur í skólanum og um 75 starfsmenn.
  • Skólinn opnar 7:45 og kennsla hefst 8:15/8:25, henni lýkur 13:15/14:00 eða síðar hjá þeim sem eru í valgreinum.

Hagnýtar upplýsingar

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 07:45-15:30
Föstudaga frá kl. 07:45-14:00

Listi yfir starfsfólk Álftanesskóla sem og allt starfsfólk Garðabæjar.

Netföng stjórnenda