Álftanesskóli
Grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk

Álftanesskóli
SKÓLASETNING HAUST 2026
Skólasetning Álftanesskóla fer fram á sal skólans mánudaginn 24. ágúst. Nemendur og forráðaaðilar fara að henni lokinni í stofur með umsjónarkennara þar sem haustfundur verður haldinn.
Áætlað er að skólasetning og haustfundur taki um 1 - 1,5 klst.
Tímasetning skólasetninga:
- Nemendur í 2. - 4. bekk mæta kl. 9:00
- Nemendur í 8. - 10. bekk mæta kl. 10:00
- Nemendur í 5. - 7. bekk mæta kl. 11:00
- Nemendur í 1. bekk mæta kl. 13:00 - haustfundur verður boðaður síðar
- Nemendur á yngsta stigi (2. - 4. bekk) fá gæslu hjá starfsmönnum skólans á meðan á haustfundum stendur.
Skólastarf hefst svo skv. stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst og þá opnar einnig frístundaheimilið fyrir nemendur sem þar eru skráðir.
Hægt er að senda skólanum tölvupóst á netfang skólans alftanesskoli@alftanesskoli.is
Um Álftanesskóla
Nýr vefur Álftanesskóla er í þróun og verður tekinn í notkun síðar á árinu.
Fyrsti áfangi Álftanesskóla var tekinn í notkun haustið 1978. Fyrir þann tíma var skólahald á Bessastöðum frá 1880, Bjarnastaðaskóli starfaði frá 1889 til 1978, og var til húsa að Bjarnastöðum. Jafnhliða fjölgun íbúa og nemenda hefur skólinn stækkað. Frá haustinu 1998 hefur Álftanesskóli verið einsetinn.
Í dag er Álftanesskóli einsetinn, heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1. – 10. bekk. Skólasafnið og Bókasafn Álftaness/Garðabæjar eru rekin sameiginlega í skólahúsinu. Eftir að skóladegi nemenda í 1. – 4. bekk lýkur er boðið upp á síðdegisvistun, Frístund. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá, skólastefnu sveitarfélagsins og skólanámskrá skólans.
- Á skólaárinu 2025-2026 eru 387 nemendur í skólanum og um 75 starfsmenn.
- Skólinn opnar 7:45 og kennsla hefst 8:15/8:25, henni lýkur 13:15/14:00 eða síðar hjá þeim sem eru í valgreinum.
Hagnýtar upplýsingar
Opnunartími skrifstofu
Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 07:45-15:30
Föstudaga frá kl. 07:45-14:00
Listi yfir starfsfólk Álftanesskóla sem og allt starfsfólk Garðabæjar.
Netföng stjórnenda
Anna María Skúladóttir,
skólastjóri
annaskula@alftanesskoli.is
Drífa Sigurjónsdóttir,
aðstoðarskólastjóri
drifasi@alftanesskoli.isHelga Kristjánsdóttir,
deildarstjóri 1.-6. bekk
helgakris@alftanesskoli.isSteinunn Sigurbergsdóttir,
deildarstjóri 7.-10. bekk
steinsig@alftanesskoli.is
Rakel Margrét Viggósdóttir,
deildarstjóri stoðþjónustu
rakelvi@alftanesskoli.is
Mjöll Flosadóttir,
skrifstofustjóri
mjollfl@alftanesskoli.is
Sindri Viborg,
umsjónarmaður frístundar
sindrivi@alftanesskoli.isNetfang frístundar: fristund@alftanesskoli.is
Símanúmer í frístund: 821-5455




