Jazzhátíð Garðabæjar 2019
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Farið yfir hvernig tókst til.
Farið var yfir hvernig til tókst með Jazzhátíð Garðabæjar sem var haldin dagana 25.-27. apríl sl. Þrennir kvöldtónleikar og einir síðdegistónleikar voru haldnir í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og auk þess voru tónleikar í félagsmiðstöðinni Jónshúsi í samstarfi við Félag eldri borgara í Garðabæ. Hátíðin var nú haldin í fjórtánda sinn og listrænn stjórnandi frá upphafi er Sigurður Flosason tónlistarmaður.
Góð mæting var á alla tónleika hátíðarinnar. Nefndin lýsir yfir ánægju með dagskrá hátíðarinnar og þakkar þeim sem að henni komu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Farið yfir undirbúning vegna jazzhátíðarinnar.
Upplýsingastjóri greindi frá undirbúningi við Jazzhátíð Garðabæjar sem verður haldin dagana 25.-27. apríl nk. Hátíðin hefst að kvöldi til Sumardaginn fyrsta og boðið verður upp á þrenna kvöldtónleika í Kirkjuhvoli en auk þess verða tvennir tónleikar að degi til á laugardeginum 27. apríl í Jónshúsi og Kirkjuhvoli.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Upplýsingastjóri greindi frá undirbúningi við Jazzhátið Garðabæjar sem fer fram dagana 25.-27. apríl nk. og farið var yfir kynningarmál. Áfram verður unnið að undirbúningi hátíðarinnar sem er undir listrænni stjórn Sigurðar Flosasonar tónlistarmanns.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Sigurður Flosason tónlistarmaður og listrænn stjórnandi jazzhátíðarinnar mætir á fundinn.
Sigurður Flosason, tónlistarmaður og listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar frá upphafi, var gestur fundarins undir þessum lið. Sigurður fór yfir hvernig hátíðin hefur verið á liðnum árum en í ár verður hátíðin haldin í 14. sinn með upphaf á Sumardaginn fyrsta 25. apríl nk. Einnig greindi Sigurður frá fyrstu hugmyndum að dagskrá hátíðarinnar á þessu ári. Umræður voru um jazzhátíðina og kynningu á hátíðinni.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
7. fundur
Farið yfir dagsetningar o.fl. tengt Jazzhátíð í apríl.
Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í fjórtánda sinn í vor með upphaf að kvöldi til á Sumardaginn fyrsta, 25. apríl nk. Byrjað er að huga að dagskrá sem verður kynnt á næsta fundi menningar- og safnanefndar. Listrænn stjórnandi er sem fyrr Sigurður Flosason tónlistarmaður.