Beint í efni

Barn­vænt sveit­ar­fé­lag - Barna­sátt­mál­inn

Garðabær fékk viðurkenningu frá UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag í nóvember 2025. Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi.

Hvað er barnvænt sveitarfélag?

Barnvæn sveitarfélög (e. Child Friendly Cities) eru bæir, borgir eða samfélög sem stýrt er af sveitar- eða bæjarstjórn þar sem markmiðið er að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda barna s.s. við gerð stefnu, verkefna eða við aðra ákvarðanatöku.

Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF (Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna). UNICEF á Íslandi hefur umsjón með innleiðingu verkefnisins á Íslandi í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og sveitarfélög sem eru þátttakendur í verkefninu.

Hér má lesa nánar um Barnvæn sveitarfélög á vef verkefnisins:

Barnvænt sveitarfélag - hvítur texti - blár grunnur

Barnvæn sveitarfélög byggja á 5 grunnþáttum úr Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Innleiðing Barnasáttmálans í Garðabæ

Innleiðingarferli í Garðabæ var unnið í samstarfi við UNICEF á Íslandi á árunum 2020-2025 og Garðabær fékk viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag í nóvember 2025.

Stýrihópur skipaður fulltrúum úr ungmennaráði, bæjarstjórn og fulltrúum sviða vann að kortlagningu og stöðumati og samhliða stöðumatinu og í framhaldi af því var unnið að aðgerðaáætlun Garðabæjar vegna innleiðingar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Aðgerðaáætlun Garðabæjar 2020-2024 samanstóð af 21 aðgerð og var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 3. október 2024. Aðgerðirnar voru flokkaðar í 4 þætti er lúta að aukinni fræðslu, breytingum á stjórnsýslu, innleggi og röddum barna og félagslegri virkni.

Aðgerðaáætlun Garðabæjar vegna innleiðingar Barnasáttmálans 2020-2024

Lokaskýrsla Garðabæjar vegna innleiðingar Barnasáttmálans nóvember 2025

Barnvænt sveitarfélag - fréttir