Fréttir og tilkynningar
Tilkynningar19.08.2026Unnið að viðgerðum á Vatnsendavegi
Loftorka mun vinna að viðgerðum á Vatnsendavegi, milli Hattavalla og Austurkórs, fimmtudaginn 20. ágúst.
Tilkynningar18.08.2026Lokun á Höfðabraut 18. ágúst
Loftorka vinnur að malbikun á Höfðabraut, milli Suðurnesvegar og Brekkuskógar, þriðjudaginn 18. ágúst. ATH verkið hefst ekki fyrr en milli 17 og 18 í kvöld þriðjudag.
Tilkynningar12.08.2026Framkvæmdir við göngu- og hjólastíga við Ásahverfi
Framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi eru enn í fullum gangi og nú er vinna hafin milli göngubrúar og Lyngáss. Hjáleið er um Stórás.
Tilkynningar11.08.2026Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg - 3. áfangi
Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 3. og síðasta áfanga verksins verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs áfram lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.
Tilkynningar04.08.2026Tímabundin lokun á aðrein frá Arnarnesvegi að Hafnarfjarðarvegi
Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 2. áfanga verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.
Tilkynningar31.07.2026Syðra bílastæði við Vífilsstaðavatn lokað í ágúst
Syðra bílastæðið við Vífilsstaðavatn verður lokað tímabundið frá 4. ágúst vegna framkvæmda.
Fréttir22.07.2026Endurbætur á leikvelli við Furuás
Í sumar hófust framkvæmdir við endurbætur á leikvelli við enda götunnar Furuáss í Ásahverfi. Leikvöllurinn hefur verið endurhannaður með yngri börn í huga.
Fréttir21.07.2026Aðskildir göngu- og hjólastígar við Ásahverfi
Nýlega hófust framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi, vestan Hafnarfjarðarvegar. Aðgengi að brú um Hafnarfjarðarveg verður eingöngu um tröppur og ramp í tröppunum. Strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg er opin en aðgengi í fylgd starfsmanna á verkstað að degi til.
Fréttir09.07.2026Framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi í júlí og ágúst
Í sumar verður unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes vegna nýs hverfis sem er að fara í uppbyggingu í Arnarlandi.
Fréttir25.06.2026Framkvæmdir við Ásgarð
Framkvæmdir vegna nýs knattspyrnuvallar við Ásgarð eru að hefjast.
Fréttir03.06.2026Endurbætur á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram
Framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram. Nú er komið að kaflanum frá Laufási yfir að Álftanesvegi.
Tilkynningar28.05.2026Heitavatnslaust í hluta Garðabæjar 28. maí - Ásgarðslaug lokuð
Vegna bilunar verður heitavatnslaust í hluta Garðabæjar fimmtudaginn 28. maí, frá klukkan 13:00 - 19:00. Loka þarf Ásgarðslaug klukkan 13:00.
Fréttir20.04.2026Nýr búsetukjarni rís í Hnoðraholti
Það var sannkölluð gleðistund þegar fyrstu skóflustungurnar að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Haustbraut í Hnoðraholti voru teknar.
Fréttir15.04.2026Lokun á Flóttamannavegi vegna framkvæmda
Loka þarf kafla á Flóttamannavegi frá og með mánudeginum 20. apríl vegna framkvæmda við nýtt hringtorg.
Tilkynningar10.04.2026Yfirborðsfrágangur við Álftaneslaug
Mánudaginn 13. apríl verður lokun sett upp framan við Álftaneslaug.