Fundargerðir

Til baka Prenta
Fjölskylduráð Garðabæjar - 5

Haldinn í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi,
15.06.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Gunnar Valur Gíslason formaður,
Sturla D Þorsteinsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Berglind Víðisdóttir varamaður,
Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Snædís Björnsdóttir verkefnastjóri, Guðrún Willardsdóttir félagsráðgjafi.
Fundargerð ritaði: Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2206219 - Kynning fyrir fjölskylduráð
Mál nr. 2206219, kynning fyrir fjölskylduráð um verkefni fjölskyldusviðs og aðkomu fjölskylduráðs að þeim málum.
Mál nr. 2206219, kynning fyrir fjölskylduráð. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur fjölskyldusviðs fer yfir helstu hlutverk og verkefni fjölskylduráðs. Viðstaddir fulltrúar fjölskylduráðs skrifa undir yfirlýsingu um trúnaðar- og þagnarskyldu.
2. 2205454 - Breytingar á barnaverndarlögum koma til framkvæmda 1. janúar 2023 - umboð barnaverndarnefnda framlengt
Mál nr. 2205454, tekið til umfjöllunar. Um er að ræða breytingar á barnaverndarlögum sem koma til framkvæmda 1. janúar 2023 og leiðbeiningar til sveitarstjórna um skipan barnaverndarnefnda eftir sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022.
Breytingar á barnaverndarlögum sem koma til framkvæmda 1. janúar 2023 teknar til umfjöllunar. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, fer yfir aðkomu fjölskylduráðs að barnaverndarmálum, fyrir og eftir 1. janúar 2023.
3. 2203678 - Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging vegna húsaleigu
Mál nr. 2203678, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2203678, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
4. 2204281 - Umsókn um styrk til forvarnarverkefnis
Mál nr. 2204281, tekið til umfjöllunar, umsókn um styrk til forvarnarverkefnis. Málinu er vísað til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Um er að ræða hóp fagfólks á Sálfræðistofunni Höfðabakka sem er að vinna forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Þau sækja um styrk til þess að smíða metnaðarfullt app með æfingum til að þjálfa börn og foreldra í slökun og hugleiðslu, einnig er í smíðum ný verkfærakista um félagsfærni. Allt efni er ókeypis fyrir foreldra og hægt að nálgast það á vefnum.

Mál nr. 2204281, tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð telur verkefnið vera áhugavert og til þess fallið að efla og styrkja sjálfsmynd barna á nýstárlegan hátt og leggur fyrir starfsmenn fjölskyldusviðs að afla frekari upplýsinga um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Vísað til áframhaldandi umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs í ágúst.
5. 2204039 - Ættleiðingarmál
Lagt er fyrir fund fjölskylduráðs Garðabæjar mál nr. 2204039, beiðni um forsamþykki fyrir ættleiðingu barns erlendis frá.
Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með útgáfu forsamþykkis vegna ættleiðingar barns erlendis frá til umsækjanda.
6. 1903268 - Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Mál nr. 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-maí 2022.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-maí 2022 lagt fram til umræðu.
Fjöldi á fjárhagsaðstoð maí 2022 SB.pdf
Tölfræði í barnavernd maí 2022.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).