19.06.2025 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi. |
|
Fundinn sátu: Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar. Stella Stefánsdóttir varabæjarfulltrúi. Björg Fenger bæjarfulltrúi. Sigríður Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi. Harpa Rós Gísladóttir varabæjarfulltrúi. Lilja Lind Pálsdóttir varabæjarfulltrúi. Inga Rós Reynisdóttir varabæjarfulltrúi. Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi. Greta Ósk Óskarsdóttir varabæjarfulltrúi. Brynja Dan Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi. Rakel Steinberg Sölvadóttir varabæjarfulltrúi. |
|
Fundargerð ritaði: Sigríður Logadóttir lögfræðingur. |
|
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. júní 2025 er lögð fram.
Margrét Bjarnadóttir minntist í upphafi fundarins Sigrúnar Aspelund fv. bæjarfulltrúa sem lést þann 3. maí síðastliðinn og færði fjölskyldu hennar samúðarkveðjur. Sigrúnar var minnst með einnar mínútu þögn. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 2506309 - 110 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis |
Björg Fenger tók til máls og kynnti tillögu um leiðtogaverkefni fyrir ungar konur í Garðabæ ásamt greinargerð.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls. Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls. Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls. Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls. Lilja Lind Pálsdóttir tók til máls. Stella Stefánsdóttir tók til máls. Margrét Bjarnadóttir tók til máls. Gréta Ósk Óskarsdóttir tók til máls.
Margrét Bjarnadóttir bar upp eftirfarandi tillögu: Garðabær standi fyrir leiðtogaverkefni fyrir ungar konur í Garðabæ sem vilja rækta leiðtogafærni sína. Verkefninu er ætlað að styðja við konur sem hafa áhuga á stjórn- og samfélagsmálum.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
|
|
|
|
2. 2506007F - Fundargerð bæjarráðs frá 10/6 ´25. |
Stella Stefánsdóttir ræddi 15. tl. skýrslur og kynningarefni SSH vegna sóknaráætlunarverkefna höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. júní 2025.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 15. tl. skýrslur og kynningarefni SSH vegna sóknaráætlunarverkefna höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. júní 2025.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 14. tl., lóð undir hjúkrunarheimili í Garðabæ og 15. tl. skýrslur og kynningarefni SSH vegna sóknaráætlunarverkefna höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. júní 2025.
Björg Fenger ræddi 15. tl. skýrslur og kynningarefni SSH vegna sóknaráætlunarverkefna höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. júní 2025.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 15. tl. skýrslur og kynningarefni SSH vegna sóknaráætlunarverkefna höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. júní 2025.
Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða. |
|
|
|
3. 2506011F - Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/6 ´25. |
Harpa Rós Gísladóttir óskaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki karla og ræddi 1. tl., Stjarnan Íslandsmeistari í körfubolta karla 2025, 2. tl. hönnun - útboð - gervigrasvellir 2025 - Stekkjarflöt og 4. tl. starfsskýrslur félagsmiðstöðva.
Rakel Steinberg Sölvadóttir óskaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki karla og ræddi 1. tl. Stjarnan Íslandsmeistari í körfubolta karla 2025 og 7. tl. NM í Ólympískum lyftingum H2025 í Miðgarði.
Björg Fenger ræddi 7. tl. NM í Ólympískum lyftingum H2025 í Miðgarði.
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
4. 2506010F - Fundargerð leikskólanefndar frá 12/6 ´25. |
Inga Rós Reynisdóttir ræddi 1. tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi á starfsumhverfi leikskóla.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1. tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi á starfsumhverfi leikskóla.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1. tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi á starfsumhverfi leikskóla og 2. tl. útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 2. tl. útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1. tl. könnun Gallup á breytingum á starfsumhverfi á starfsumhverfi leikskóla.
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
5. 2505049F - Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/6 ´25. |
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 2. tl. ástundun og skólasókn, 3. tl. endurmenntun fagfólks grunnskóla 2025-2026, 4. tl. grunnskólar, árangur og líðan, 5. tl. sértæk úrræði í grunnskólum og 6. tl. störf skólanefndar 2024-2025, samantekt og áherslur á næsta skólaári.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 6. tl. störf skólanefndar 2024-2025, samantekt og áherslur á næsta skólaári.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2. tl. ástundun og skólasókn.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2. tl. ástundun og skólasókn.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 6. tl. störf skólanefndar 2024-2025, samantekt og áherslur á næsta skólaári og 2. tl. ástundun og skólasókn.
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og ræddi 2. tl. ástundun og skólasókn.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2. tl. ástundun og skólasókn.
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
6. 2501149 - Fundargerð stjórnar SSH frá 2/6 ´25. |
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
7. 2502251 - Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 25/4 ´25. |
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
8. 2501405 - Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/5 ´25. |
Fundargerðin er lögð fram. |
|
|
|
9. 2506155 - 50 ára afmæli Garðabæjar 2026 |
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og kynnti tillögu um afmælisnefnd og verkefnahóp í tilefni af 50 ára afmælinu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Margrét Bjarnadóttir ber upp eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna eftirfarandi aðila í afmælisnefnd vegna 50 ára kaupstaðaafmælis Garðabæjar 2026:
Gunnar Valur Gíslason (D) formaður Guðfinnur Sigurvinsson (D) Andrea Gunnarsdóttir (D) Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G) Guðlaugur Kristmundsson (C)
Tillagan er samþykkt samhljóða.
|
|
|
|
10. 2506194 - Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2025 |
Með vísan til 14.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 4.mgr. 8.gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 21. ágúst 2025. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 19. ágúst 2025.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga.
Tillagan er samþykkt samhljóða. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00. |