• 3.9.2018, 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Ævintýraeyjan Tenerife kl. 18 í Bókasafni Garðabæjar

Kynning um ævintýraeyjuna Tenerife fer fram mánudaginn 3. september klukkan 18:00 í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi. 

Kynning um ævintýraeyjuna Tenerife fer fram mánudaginn 3. september klukkan 18:00 í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi. Snæfríður Ingadóttir, fjölmiðlakona fjallar um nýútkomna ferðahandbók sína, Ævintýraeyjan Tenerife - stór ævintýri á lítilli eyju. Snæfríður ferðast árlega til Kanaríeyja með fjölskyldu sinni og er Tenerife í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Í bókinni deilir hún úr reynslubanka sínum og gefur lesendum hugmyndir að ýmsu áhugaverðu sem vert er að skoða og upplifa á Tenerife. Ef þú ert á leið til Tenerife og vilt lenda í stórum ævintýrum á þessarri litlu eyju þá veitir þessi bók þér innblástur! Bókin verður fáanleg á staðnum á tilboðsverði, 3000 kr. ATH. Enginn posi verður á staðnum.