• 8.12.2020, 12:00, Streymi á facebook

Bókasafn Garðabæjar - bókakynning - Ásdís Halla Bragadóttir

Ásdís Halla Bragadóttir kynnir nýjustu bók sína Ein: sönn saga, sem er fyrsta skáldsaga hennar.

Fylgist með streymi frá viðburðinum á fésbókarsíðu Bókasafns Garðabæjar þriðjudaginn 8.desember kl.12. 

Þegar ung kona sem starfar í heimaþjónustu mætir til vinnu í blokk fyrir eldri borgara við Aflagranda blasir við henni óvænt sýn. Hún óttast að eiga sök á því að hafa hrundið af stað hræðilegri atburðarás. Á annarri hæð í sömu blokk rennur upp fyrir eldri manni að veski hans og bíllyklum hefur verið stolið og hann fyllist örvæntingu og bræði.Í New York, borg sem er lömuð af ótta, berst ungur íslenskur læknir við að bjarga fórnarlömbum Covid-19 faraldursins. Fortíð hennar hefur skilið eftir sig sár á líkama og sál en óbærilegt ástandið fær hana til að taka óvænta og erfiða ákvörðun.Áður hafa komið út eftir Ásdísi Höllu minningabækurnar Tvísaga og Hornauga sem vöktu mikla athygli og hlutu einróma lof gagnrýnenda.
Viðburður á fésbókarsíðu bókasafnsins.