• 7.2.2021, 13:00 - 15:00, Leikskólin Lundaból

Söguganga | Vetrarhátið í Garðabæ

Höfundur Fíusólar, Kristín Helga Gunnarsdóttir, leiðir fjölskyldugöngu sem hefst við leikskólann Lundaból við Hofsstaðabraut sunnudaginn 7. febrúar kl. 13-15. 

Sunnudaginn 7. febrúar klukkan 13:00 fer höfundur Fíusólar, Kristín Helga Gunnarsdóttir, í fjölskyldugöngu sem hefst við leikskólann Lundaból við Hofsstaðabraut. Slóðir Fíusólar verða rannsakaðar og sögurnar á bak við sögurnar ræddar. Gengið verður niður Silfurtún og ferðast í gegnum tímann með Binnu og Móa hrekkjusvíni en göngunni lýkur við Bókasafnið á Garðatorgi 7 þar sem verður boðið upp á stutt myndaspjall. Dagskráin tekur tæpar tvær klukkustundir en opið verður á Bókasafninu frá 14-16 í tilefni göngunnar. Gestir eru beðnir að klæðast eftir veðri og hafa sóttvarnir í hávegum en aðeins 20 fullorðnir mega ganga með Kristínu Helgu.