• 1.11.2018, 17:00 - 18:00, Hönnunarsafn Íslands

Hústónar á vinnustofusýningu í Hönnunarsafninu

Torfi Fannar mun leggja prjónavélina til hliðar og taka upp plötuspilarana ásamt Ásláki Ingvarssyni og spinna saman house tónlist á milli kl 17 – 18 fimmtudaginn 1. nóvember í Hönnunarsafni Íslands.

Torfi Fannar mun leggja prjónavélina til hliðar og taka upp plötuspilarana ásamt Ásláki Ingvarssyni og spinna saman house tónlist á milli kl 17 – 18 fimmtudaginn 1. nóvember í Hönnunarsafni Íslands.

Viðburður á facebook.
Torfi Fannar er búinn að vera í Hönnunarsafni Íslands með lifandi vinnustofu í anddyrinu undanfarna mánuði og vinnustofusýningunni lýkur 1. nóvember.
Vörur Torfa Fannars verða áfram fáanlegar í safnbúðinni.
Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 í Garðabæ, safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17. Vefur Hönnunarsafnsins
Hönnunarsafnið á facebook