• 21.2.2021, 14:00, Hönnunarsafn Íslands

Leiðsögn um sýninguna Deiglumór í Hönnunarsafninu

Sunnudaginn 21. febrúar kl 14:00 mun Inga S. Ragnarsdóttir, myndlistarmaður og annar af sýningarstjórum sýningarinnar ganga með gestum um sýninguna Deiglumór. Keramik úr íslenskum leir 1930 - 1970.

Sýningin byggir á rannsóknum Ingu á tímabilinu 1930 - 1970 í sögu keramiklistar á Íslandi. Þar má sjá gripi frá fyrstu leirkeraverkstæðum á Íslandi. Þeir frumkvöðlar sem ráku verkstæðin lögðu áherslu á að nýta íslenskan leir í gripina. Verkstæðin sem um ræðir eru: Listvinahúsið, Funi, Laugarnesleir, Lerbrennsla Benedikts Guðmundssonar, Roði / S.A. keramik og Glit.

Sjá viðburð á fésbókarsíðu Hönnunarsafnsins.

Nánari upplýsingar á vef Hönnunarsafnsins. 
Aðgangseyrir á safnið gildir sem miði á leiðsögn.
1000 kr. fyrir fullorðna
500 kr. fyrir eldri borgara
Frítt fyrir yngri en 18 ára.