• 21.8.2018, 18:00

Leikhópurinn Lotta sýnir Gosa á Vífilsstaðatúni kl. 18

  • Gosi

Leikhópurinn Lotta mætir í Garðabæ, nánar tiltekið á Vífilsstaðatún. Í sumar verða tvær sýningar, þriðjudaginn 12. júní  kl 18:00 og þriðjudaginn 21. ágúst kl 18:00.

Leikhópurinn Lotta mætir í Garðabæ, nánar tiltekið á Vífilsstaðatún. Í sumar verða tvær sýningar, þriðjudaginn 12. júní  kl 18:00 og þriðjudaginn 21. ágúst kl 18:00.

Í sumar hefur hópurinn ákveðið að kynnast betur spýtustráknum Gosa og ber nýjasta leikritið nafn hans. Sagan um Gosa gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og visa blandast fleiri þekkt ævintýri inn í verkið. Heyrst hefur að það beri okkur inn í háan turn þar sem við hittum skemmtilega stelpu með afskaplega langa fléttu og að á öðrum stað í Ævintýraskóginum verðum við vitni að því þegar þrjár óskir valda miklum vandræðagangi. Fleira skal ekki gefið upp að sinni enda sjón sögu ríkari.

Höfundur verksins er Anna Bergljót Thorarensen en þetta er áttunda verkið sem hún skrifar fyrir hópinn. Hún semur einnig lagatexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni og Stefáni Benedikt Vilhelmssyni. Í Gosa eru samtals 10 glæný og stórskemmtileg lög sem eru samin af fyrrnefndum Baldri, Birni Thorarensen og Rósu Ásgeirsdóttur. Það er því óhætt að lofa stuði og stemningu þegar saman fara skemmtileg ævintýri í bland við flotta tónlist. Öllu þessu er síðan haldið saman af höfundinum, sem einnig leikstýrir sýningunni, og danshöfundinum Berglindi Rafnsdóttur sem eykur enn á fjörið með líflegum dönsum.

Sex leikarar og tónlistarmenn halda uppi sýningunni og sjáum við þar bæði ný og gömul andlit. Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Björn Thorarensen, Huld Óskarsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir skipta á milli sín öllum hlutverkum sýningarinnar og er ekki síður mikið um að vera baksviðs þegar leikarar setja hvert hraðametið á fætur öðru í búningaskiptum.

Gosi er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman.

Lotta heldur í hefðina og sýnir sýningar sínar utandyra (Vífilsstaðatúni) svo það er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna inni í Ævintýraskóginum. Því vittu til, Ævintýraskógurinn er einmitt á leiðinni til þín. 

Fésbókarsíðan hjá Leikhópnum Lottu.