• 26.1.2019, 13:00 - 15:00, Hönnunarsafn Íslands

Smástundamarkaður - Hvað ætlar þú að gera við alla dagana 2019?

  • Hildigunnur og Snæfríð

Smástundamarkaður í samstarfi við hönnuðina Hildigunni Gunnarsdóttur og Snæfríð Þorsteins verður haldinn laugardaginn 26. janúar nk kl. 13-15 í Hönnunarsafni Íslands, Garðatorgi 1. Á markaðnum verður kynnt sérstaklega RIFDAGATAL sem þær hafa hannað og selt undanfarin ár ásamt fleiri skipulagsmiðuðum vörum sem nefnast KONTRÓLKUBBAR.

Einnig verða á boðstólum BÆKUR úr bókaklúbbi Angustúru en bækurnar voru tilnefndar til Hönnunarverðlauna Íslands á síðasta ári. Bók er ævagamalt form og áskorun fyrir hönnuð að hanna bók sem kallar á að hún sé tekin upp og lesin. Bækurnar eru í vönduðum þýðingum, þær eru frá öllum heimshornum og opna glugga út í heim.

Á meðan á markaðnum stendur býðst 20% afsláttur af verkum þeirra Snæfríðar og Hildigunnar.

Viðburðurinn á facebook.