• 1.11.2018, 16:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar

„Það er kominn vetur“

  • Ósk Laufdal

Ósk Laufdal er listamaður nóvembermánaðar í Bókasafni Garðabæjar í samstarfi við Grósku. Sýning hennar heitir „Það er kominn vetur“ og er formleg opnun þann 1. nóvember kl. 16-18.

Ósk Laufdal er listamaður nóvembermánaðar í Bókasafni Garðabæjar í samstarfi við Grósku. Sýning hennar heitir „Það er kominn vetur“ og er formleg opnun þann 1. nóvember kl. 16-18.

Ósk hóf olíumálun á striga árið 2014 en drjúgur tími hennar hefur farið í að mála á handverk í gegnum árin. Eftir tíma handverksins tók við ný stefna í listsköpun og varð vatnslitum , olía og akrýlmálning á striga fyrir valinu. 

Ósk hefur haldið fjölda samsýninga og verið með nokkrar einkasýningar. Þá hefur Ósk samið tvær ljóðabækur og gefið út þrjár barnabækur sem hún hefur einnig myndskreytt og farið með á sýningu myndskreyta í Gerðubergi. Á sýningunni „Það er kominn vetur“ eru myndskreytingar úr barnabókunum sem og olíumálverk og vatnslitamyndir. Er því mjög gaman fyrir börn að koma og sjá verkin. Allir velkomnir.


Viðburðurinn á Facebook.