• 5.9.2018, 18:00, Sjálandsskóli

Vinátta – gengið frá Sjálandsskóla við Löngulínu - 5. september kl. 18 – taktu með þér vin!

  • Lýðheilsuganga 2017

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september. Vinátta er þema fyrstu göngunnar sem verður farin frá Sjálandsskóla við Löngulínu miðvikudaginn 5. september kl. 18. 

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september.  Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land.  Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum. 

Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga í september og er fyrsta gangan miðvikudaginn 5. september.

Vinátta – gengið frá Sjálandsskóla við Löngulínu 5. september kl. 18 – taktu með þér vin!

Vinátta er þema fyrstu göngunnar sem verður farin frá Sjálandsskóla við Löngulínu miðvikudaginn 5. september kl. 18.  Svandís Ríkharðsdóttir íþróttakennari leiðir göngufólk í hressingargöngu meðfram strandlengjunni og göngumenn fá tækifæri til að prófa nýja hreystigarðinn við Arnarnesvog. 

Allir eru velkomnir í gönguna en tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Miðvikudaginn 12. september verður svo haldið í hressingargöngu frá íþróttamiðstöðinni Ásgarði og m.a. staldrað við hjá nýjum hreystigarði við Sunnuflöt. Miðvikudaginn 19. september verður gengið í Heiðmörkinni frá nýju bílastæði við Búrfellsgjá/Selgjá.  Síðasta gangan verður 26. september en þá verður gengið frá Bessastöðum að Skansinum.    

Göngurnar eru um leið áframhald sögu- og fræðslugangna sem hafa verið í boði á þessu ári og undanförnu ári í Garðabæ og hafa verið vel sóttar af almenningi.  

Allar upplýsingar um göngustaði og gönguleiðir annars staðar á landinu má finna á vef verkefnisins www.fi.is/lydheilsa

Viðburðurinn á Facebook