• 7.9.2018, 9:00 - 17:00, Bókasafn Garðabæjar

Vöfflukaffi á bókasafnsdaginn í Bókasafni Garðabæjar

Hinn árlegi Bókasafnsdagur verður haldinn á bókasöfnum landsins 7. september 2018. Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu og í ár er dagurinn tileinkaður vísindum af öllum toga. 

Hinn árlegi Bókasafnsdagur verður haldinn á bókasöfnum landsins 7. september 2018. Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu og í ár er dagurinn tileinkaður vísindum af öllum toga. Að því tilefni verður boðið upp á vöfflukaffi á Bókasafni Garðabæjar eftir kl. 14:00 og þangað til þær klárast. Sérstök bókaútstilling verður áberandi þar sem öllum vísindum verður gert hátt undir höfði. Allir velkomnir í vöfflukaffi. 
Viðburðurinn á Facebook.