Fundargerðir

Til baka Prenta
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
32. fundur
08.06.2021 kl. 16:00 kom skólanefnd grunnskóla Garðabæjar saman til fundar í Sveinatungu, Garðatorgi.
Fundinn sátu: Sigríður Hulda Jónsdóttir aðalmaður, Jóhann Steinar Ingimundarson aðalmaður, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir aðalmaður, Sturla D Þorsteinsson aðalmaður, Sara Dögg Svanhildardóttir aðalmaður, Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Silja Kristjánsdóttir fulltrúi kennara, Hjörtur Jónsson fulltrúi foreldra, Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi.

Fundargerð ritaði: Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi Garðabæjar.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: 
1. 2106074 - Störf skólanefndar 2020-2021 samantekt
Störf skólanefndar 2020-2021 lögð fram. Formaður skólanefndar fór yfir samantekt á störfum nefndarinnar á skólaárinu.
2. 2106075 - Áherslur Skólanefndar grunnskóla 2021-2022
Skólanefnd ræddi áherslur næsta skólaárs.
3. 2106073 - Menntadagur í Garðabæ 2021
Rætt var um fyrirhugaðan menntadag í Garðabæ sem haldinn verður föstudaginn 22. október 2021.
4. 2106116 - Velferðarþing Garðabæjar
Rædd var hugmynd um velferðarþing í tengslum við forvarnarviku sem haldinn verður í Garðabæ í október 2021.
5. 2012042 - Skólastefna Garðabæjar 2020
Skólanefnd fór yfir og ræddi drög að endurskoðaðri menntastefnu 2021.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00. 
Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).