• 9.5.2018, 17:30, Bókasafn Garðabæjar

Falsfréttir, samfélagsmiðlar og gervigreind - Bókasafn Garðabæjar kl. 17:30

Falsfréttir, samfélagsmiðlar og gervigreind - Eitruð blanda fyrir framtíð lýðræðis?

Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar ætlar að halda erindið á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 9. maí klukkan 17:30.

 

Falsfréttir, samfélagsmiðlar og gervigreind - Eitruð blanda fyrir framtíð lýðræðis?
 
Mikil umræða er um villandi og rangar upplýsingar í samfélagsmiðlum og víðar. Rangar og misvísandi fréttir ferðast hraðar, fara víðar og hafa meiri áhrif í samfélagsmiðlum en fréttir sem standast faglegar kröfur. Um þetta verður rætt í erindinu : Falsfréttir, samfélagsmiðlar og gervigreind - Eitruð blanda fyrir framtíð lýðræðis?

Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar ætlar að halda erindið á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 9. maí klukkan 17:30.

Bókasafn Garðabæjar er staðsett á Garðatorgi 7.

Sjá einnig vef Bókasafns Garðabæjar og fésbókarsíðu safnsins.