Fræðslufundur um alzheimer í Jónshúsi kl. 13:30
Fræðslustjóri Alzheimersamtakanna kynnir starfsemi þeirra og fjallar um nýjustu þekkingu í málefnum fólks með heilabilun.
Öldrunar - og heimaþjónusta Garðabæjar:
Fræðslu- og kynningarfundir um málefni eldri borgara vorið 2018.
Fimmtudaginn 17. maí kl. 13:30-14:30 í Jónshúsi, Strikinu 6.
Fræðslustjóri Alzheimersamtakanna, Sirrý Sif Sigurlaugardóttir félagsráðgjafi, kynnir starfsemi þeirra og fjallar um nýjustu þekkingu í málefnum fólks með heilabilun.
Heitt á könnunni, aðgangur ókeypis, allir velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.alzheimer.is