• 28.10.2022, 18:00, Hönnunarsafn Íslands

Hönnunarsafn Íslands-sýningaropnun: Diether Roth - grafísk hönnun

  • Diether Roth, fyrir bókbandsefni

Velkomin á opnun á sýningu á grafískri hönnun Dieter Roth föstudaginn 28. október kl.18. Sýningin er á Pallinum, litlu nýju sýningarrými í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg.

Á sýningunni er lögð áhersla á að sýna úrval verka Dieters sem flokkast undir grafíska hönnun og hafa mörg hver ekki fengið mikla athygli hingað til. Líftími verkanna er oft ekki langur, þau ekki talin verðmæt og fá eintök hafa varðveist. Þessi verkefni dýpka þekkingu okkar á þróun grafískrar hönnunar. Óhætt er að segja að Dieter Roth (1930-1998) sé í hópi frumkvöðla sem mótuðu grafíska hönnun á Íslandi og víðar.

Sýningarstjórar / Curators: Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Fraser Muggeridge.

Ljósmynd: Dieter Roth, fyrir bókbandsefni.

Vefur Hönnunarsafns Íslands.