• 16.6.2022, 16:30, Hönnunarsafn Íslands

Innflutningsboð hjá Módelsmiðum

  • Innflutningsboð hjá Módelsmiðum

Innflutningsboð hjá Módelsmiðum verður haldið fimmtudaginn 16. júní kl. 16:30-18:00 í Hönnunarsafni Íslands.

Innflutningsboð hjá Módelsmiðum verður haldið fimmtudaginn 16. júní kl. 16:30-18:00 í Hönnunarsafni Íslands.

Verið velkomin í innflutningsboð hjá módelsmiðunum Snorra Frey Vignissyni og Láreyju Huld Róbertsdóttur.
Undanfarna mánuði hefur Hönnunarsafn Íslands staðið fyrir skráningu á verkum Högnu Sigurðardóttur, arkitekts (1929 - 2017). Við skráninguna kom í ljós fjöldi áhugaverðra teikninga sem urðu aldrei að byggingum.
Tilgangur verkefnisins er að rýna í þessar teikningar og gera vönduð módel eftir völdum teikningum. Teikningarnar sem hafa verið valdar eru Gnitavegur (nú Gnitanes) 10 í Skerjafirði, teiknað 1967, og Fjólugata 29 í Vestmannaeyjum, frá 1961.
Snorri Freyr Vignisson og Lárey Huld Róbertsdóttir útskrifuðust með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands 2022.
Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.