• 4.6.2022, 16:00, Garðatorg - miðbær

Listahátíð: Rauðglóandi götuleikhús mætir í Garðabæ

  • Rauðglóandi götuleikhús - listahátíð í Garðabæ

Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Risavaxnir fánar og blævængir svífa yfir mannfjöldanum og loftið er þrungið spennu, fegurð og hrynjandi. Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg. 

Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Risavaxnir fánar og blævængir svífa yfir mannfjöldanum og loftið er þrungið spennu, fegurð og hrynjandi.

Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg.  Allir velkomnir að fylgja verunum! 

Upplýsingar á vef Listahátíðar.
Viðburður á facebook- síðu Listahátíðar. 

Hollenski leikhópurinn Close-Act Theatre hefur starfað í hartnær þrjátíu ár og vakið athygli víða um lönd fyrir leiftrandi götuleikhússýningar sem hrífa áhorfendur með sér inn í veruleika þar sem allt getur gerst.

Risaeðlurnar í sýningunni Saurus spígsporuðu um miðborg Reykjavíkur í tilefni af opnun Listahátíðar árið 2018 og glöddu áhorfendur á öllum aldri. Hér snýr hópurinn aftur með seiðandi viðburð á heimsmælikvarða sem enginn má missa af.