• 30.6.2018, 15:00, Hönnunarsafn Íslands

Safnið á röngunni með Einari Þorsteini

Leiðsögn í Hönnunarsafni Íslands

  • Leiðsögn um verk og ævistarf Einars Þorsteins

Laugardaginn 30. júní kl. 15:00 verður boðið upp á leiðsögn um skráningarverkefnið Safnið á röngunni með Einari Þorsteins í Hönnunarsafni Íslands kl. 15:00.

Laugardaginn 30. júní kl. 15:00 verður boðið upp á leiðsögn um skráningarverkefnið Safnið á röngunni með Einari Þorsteins í Hönnunarsafni Íslands kl. 15:00.

Pétur Ármannsson arkitekt og Þóra Sigurbjörnsdóttir safnafræðingur sjá um leiðsögn og spjall á sýningunni Safnið á röngunni með Einari Þorsteini.
Undanfarnar vikur hefur Þóra leitt skráningu á verkum Einars Þorsteins í Hönnunarsafni Íslands fyrir opnum tjöldum. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 munir. Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni, samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu.

Viðburður á fésbókarsíðu Hönnunarsafnsins.

Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 í Garðabæ.  Safnið er opið alla daga (nema mánudaga) frá kl. 12-17. 
Á vef safnsins má finna upplýsingar um sýningar og fræðslu safnsins.   
Hönnunarsafnið á facebook.