• 12.7.2018, 19:30, Gróskusalurinn

Skapandi sumarstörf - BRAMLA - listrænn gjörningur

Ungmenni í skapandi sumarstörfum í Garðabæ vinna að ýmis konar listrænum verkefnum yfir sumartímann.

 Fimmtudaginn 12. júlí kl. 19:30 ætla þær Salóme og Alexandra að koma saman og BRAMLA í sýningarsal Grósku - Myndlistarfélags Garðabæjar á Garðatorgi.


BRAMLA er gjörningur sem fjallar um hlutverkaleik lífsins og hamlandi áhrif hans. Sýningin samanstendur af raftónlist, sviðshreyfingum og leikmynd. Allir velkomnir! 

Viðburður á facebook.
Fésbókarsíða Skapandi sumarstarfa í Garðabæ.