• 19.8.2021, 18:00, Heiðmörk

Skógarganga um Vífilsstaðahlíð

  • Myndin hMyndin var líklega tekin í Vífilsstaðahlíð, um 1965-67.

Skógræktarfélag Reykjavíkur og Ferðafélag Íslands standa fyrir skógargöngu um Vífilsstaðahluta Heiðmerkur fimmtudaginn 19. ágúst, klukkan 18:00.

Skógræktarfélag Reykjavíkur og Ferðafélag Íslands standa fyrir skógargöngu um Vífilsstaðahluta Heiðmerkur fimmtudaginn 19. ágúst, klukkan 18:00. 
Með í för að þessu sinni verður Ásta Kristín Davíðsdóttir, landvörður á Suðvesturlandi og starfsmaður Umhverfisstofnunnar. Ásta Kristín mun fjalla um náttúru svæðisins ásamt farastjórum, sem eru Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur og Páll Guðmundsson framkvæmdarstjóri Ferðafélags Íslands. Gengið verður frá stóra bílastæðinu við vesturenda Vífilsstaðavatns klukkan 18:00.

Skógargangan verður sú þriðja í sumar. Sú fjórða og síðasta verður fimmtudaginn 16. september en það verður afmælisgangan um Rauðavatnsstöðina, með leiðsögn Jóns Geirs Péturssonar. Tilefnið er að í haust verða 120 ár liðin frá því að Skógræktarfélag Reykjavíkur var fyrst stofnað, til að kaupa landskika við Rauðavatn og rækta þar skóg.

Skógargöngur Skógræktarfélags Reykjavíkur og Ferðafélags Íslands eru í léttara lagi, tveggja til þriggja klukkutíma langar. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.


Viðburðurinn á facebook.

Viðburður á vefsíðu Heiðmarkar.