• 7.6.2022 - 13.6.2022, Ásgarðslaug

Sundlaugin í Ásgarði lokuð - opnar aftur 14. júní

  • Ásgarðslaug

Sundlaugin í Ásgarði verður vegna viðhalds fram yfir helgi. Stefnt er að opnun þriðjudaginn 14. júní.

UPPFÆRT

Sundlaugin í Ásgarði verði lokuð vegna viðhalds fram yfir helgi. Stefnt er að opnun á þriðjudag 14. Júní.  Unnið hefur verið að stækkun hreinsikerfis í lagnakerfi laugarinnar auk viðgerða á flísum og fúgum í pottum og laugarkeri. Þessu verður lokið föstudag eða laugardag, en þá tekur 2-3 sólarhringa að fylla laugarkerið af vatni og ná upp réttu hitastigi. Sundlaugin verður því ekki tilbúin fyrr en á þriðjudagsmorgun 14. júní.

Sundlaugagestir eru beðnir velvirðingar á þessu og bent á að allir sundmiðar eru gildir í laugina okkar á Álftanesi.