• 21.11.2019, 20:00 - 21:30, Bókasafn Garðabæjar

Bókaspjall kl. 20

Bókaspjall - rithöfundar lesa upp úr jólabókum fimmtudaginn 21. nóvember klukkan 20 til 21:30 í Bókasafni Garðabæjar. 

Bókaspjall - rithöfundar lesa upp úr jólabókum fimmtudaginn 21. nóvember klukkan 20 til 21:30 í Bókasafni Garðabæjar. Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur stýrir umræðum. Bókaspjall hefst klukkan 20 og léttar veitingar verða í boði. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Nokkrir rithöfundar koma í heimsókn: Gerður Kristný með ljóðabókina Heimskaut, Lilja Sigurðardóttir með spennusöguna Helköld sól, Einar Kárason með ævisöguna Með sigg á sálinni og Sjón með skáldsöguna Korngult hár, grá augu.