Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ
Sjáumst á Sumardaginn fyrsta!
Hátíðarhöld verða í Garðabæ á Sumardaginn fyrsta líkt og fyrri ár.
Skátamessa verður í Vídalínskirkju kl. 13
Skrúðganga verður frá Vídalínskirkju kl. 14
Skemmtidagskrá við Hofsstaðaskóla kl. 14:30
Blásarasveit Tónlistarskólans spilar og Ronja Ræningjadóttir syngur. Atriði úr söngleiknum Clueless frá FG, hoppukastalar, kassaklifur, veltibíll o.fl.
Kandíflos, sælgæti, kaffisala og árlega kökuhlaðborð Vífils verður inni í Hofsstaðaskóla. Verð á hlaðborðinu er 1800 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr. fyrir börn 6-12 ára.