Íbúafundur - Úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar
Fimmtudaginn 24. október kl. 17 verður haldinn íbúafundur þar sem verður kynning á skýrslu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar.
Fimmtudaginn 24. október kl. 17-18 í Sveinatungu á Garðatorgi 7.
Íbúum er boðið að koma og fá kynningu á skýrslu um útttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar sem var unnin af Haraldi L. Haraldssyni hagfræðingi á árinu 2019.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur fara yfir helstu niðurstöður úttektarinnar á fundinum.
Verið velkomin,
bæjarstjóri Garðabæjar