Kynningarfundur fyrir byggingarstjóra
Nú hefur verið sett upp smáforrit (app) ætlað byggingarstjórum til að gera eigin úttektir. Forritið einfaldar ferlið að senda úttektir sem hafa verið gerðar, inn í kerfi Garðabæjar og Mannvirkjastofnunar. Haldinn verður kynningarfundur fyrir byggingastjóra miðvikudaginn 18. september kl. 15 í Sveinatungu þar sem forritið verður kynnt og virkni þessi sýnd.
Nú hefur verið sett upp smáforrit (app) ætlað byggingarstjórum til að gera eigin úttektir. Forritið einfaldar ferlið að senda úttektir sem hafa verið gerðar, inn í kerfi Garðabæjar og Mannvirkjastofnunar.
Um áramót tóku í gildi lög sem segja til um að byggingarstjórar geri eigin úttektir, beri ábyrgð á þeim og skili inn til Mannvirkjastofnunar. Skv. lögum ber sveitafélagi að halda utan um gögnin og gerir appið byggingarstjórum í sveitafélaginu kleift að fara eftir þeim lögum á einfaldan og skilvirkan máta.
OneApp
OneApp er snjallforrit fyrir byggingarstjóra til að framkvæma úttektir og senda í málakerfi Garðabæjar. Byggingarstjórar sem skráðir eru sem slíkir í byggingarleyfisumsóknum geta notað OneApp úttektir. Þegar staðfesting hefur borist frá Garðabæ um notkun á OneApp getur byggingarstjóri sótt forritið á Appstore (oneapp3). Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á OneApp.
Kynningarfundur fyrir byggingarstjóra
Haldinn verður kynningarfundur fyrir byggingastjóra miðvikudaginn 18. september kl. 15 í Sveinatungu þar sem forritið verður kynnt og virkni þessi sýnd.
Dagskráin verður eftirfarandi:
15:00
Hvernig á að byrja:
Byggingarstjóri- umsókn um notkun á snjallforriti (Appi) fyrir áfangaúttektir
Hvernig á að sækja um leyfi til að nota app.
Hvernig á að sækja app.
15:10
Hvernig á að nota:
Farið verður yfir hvernig á að skrá sig inn. Tekin verður amk. ein úttekt til að sýna hvernig appið virkar.
15:35
Tími fyrir spurningar og umræður.