• 17.5.2022, 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Lauflétti leshringurinn - Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp

Allir eru velkominir í leshringinn þriðjudaginn 17.maí kl. 18. Við ræðum um skáldsöguna Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp eftir Romain Puértolas

Allir eru velkominir í leshringinn þriðjudaginn 17.maí kl. 18. Við ræðum um skáldsöguna Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp eftir Romain Puértolas

Dag einn leggur indverski fakírinn Ajatashatru Kýrskýr Patel upp í langferð frá heimalandi sínu til Parísar með falsaðan hundrað evru seðil í farteskinu. Markmið hans er að kaupa forláta naglarúm á tilboði í IKEA og selja það hæstbjóðanda þegar heim er komið. Röð tilviljana verður til þess að fakírinn lendir í ævintýralegri Evrópureisu þar sem hann eignast undarlegustu vini á ólíklegustu stöðum.

Hér er á ferðinni fjörug og bráðfyndin saga af ferðalagi sem á engan sinn líka en um leið er tekið á sammannlegum viðfangsefnum eins og leitinni að ást, viðurkenningu og betra lífi í viðsjárverðum heimi.

Romain Puértolas hefur starfað sem plötusnúður, söngvari og lagahöfundur, tungumálakennari, túlkur og þjónn. Hann hefur einnig unnið við landamæragæslu. Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp er fyrsta bók hans. Hún kom út í París haustið 2013, sló í gegn og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál.

Friðrik Rafnsson þýddi.