• 25.9.2019, 18:00, Garðakirkja

Lýðheilsuganga um Garðahverfi

  • Gengið verður frá Garðakirkju

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september. Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land. Síðasta gangan verður miðvikudaginn 25. september en þá verður gengið frá Garðakirkju um Garðahverfi með viðkomu m.a. í burstabænum Króki.

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september. Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land. Þetta er þriðja árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum.

Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga vítt og breitt um landið og er fyrsta gangan miðvikudaginn 4. september. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem eru uþb 60-90 mínútur að lengd. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Boðið verður upp á göngur í Garðabæ miðvikudagana 4., 11., 18. og 25. september.  Síðasta gangan verður miðvikudaginn 25. september en þá verður gengið frá Garðakirkju um Garðahverfi með viðkomu m.a. í burstabænum Króki.

Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í göngunum þar sem boðið verður upp á fróðleik, auðvelda hreyfingu og umfram allt góðan félagsskap göngumanna.