• 21.12.2019, 21:00, Garðakirkja

Mozart við kertaljós í Garðakirkju

  • Kammerhópurinn Camerarctica

Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í Garðakirkju laugardagskvöldið 21. desember kl. 21. 

Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu og sjö ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.

Viðburður á facebook

Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Á efnisskránni er strengjakvartett eftir hinn unga Mozart sem er fullur af gleði og lífskrafti og hinn þekkti og dáði Klarinettukvintett sem hefur oftsinnis heyrst á kertaljósatónleikum Camerarctica. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða, ,,Í dag er glatt í döprum hjörtum”, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.

Tónleikarnir verða sem hér segir: Í Hafnarfjarðarkirkju, fimmtudagskvöldið 19. desember, Kópavogskirkju, föstudagskvöldið 20. desember, Garðakirkju, laugardagskvöldið 21. desember og loks í Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudagskvöldið 22. desember.

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.
Aðgangseyrir er kr. 3500, og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara. Frítt er inn fyrir börn.