• 31.10.2019, 16:00 - 18:00, Sveinatunga

Opið hús hjá Strætó - nýtt leiðanet

  • Strætó

Strætó mun halda opin hús á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir geta komið við, kynnt sér leiðanetið og komið sínum ábendingum á framfæri við starfsfólk Strætó og verkefnastofu Borgarlínu. Opið hús verður í Sveinatungu, Garðatorgi 7 í Garðabæ 31. október kl. 16-18 og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

Strætó óskar eftir þátttöku almennings í mótun nýs leiðanets. Miklar breytingar eru framundan í samgöngu- og skipulagsmálum höfuðborgarsvæðsins. Má þar nefna uppbyggingu Borgarlínu, skipulagsbreytingar á Hlemmi, BSÍ-reit og víðar. Nýtt leiðanet er afrakstur vinnu faghóps um leiðakerfismál og markmið verkefnisins er að laga Strætó að breyttu skipulagi og innleiða nýjar áherslur þar sem örari tíðni og styttri ferðatími verður í forgrunni.

Strætó hvetur alla til að skoða fyrstu hugmyndir að nýju leiðaneti og koma fram með hugmyndir og ábendingar varðandi legu leiða og staðsetningu stoppistöðva. Nýtt leiðanet verður innleitt í skrefum eftir því sem hægt er en stærstu breytingarnar eru áætlaðar um 2023 þegar áætlað er að fyrsta áfanga Borgarlínu verði lokið.

Strætó leggur mikla áherslu á þátttöku almennings í mótun nýs leiðanets. Fyrstu hugmyndir eru aðgengilegar hér. Á þessum vef verður hægt skila inn hugmyndum og ábendingum.

Opið hús í Garðabæ 31. október kl. 16-18

Strætó mun halda opin hús á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir geta komið við, kynnt sér leiðanetið og komið sínum ábendingum á framfæri við starfsfólk Strætó og verkefnastofu Borgarlínu. Opið hús verður í Sveinatungu, Garðatorgi 7, í Garðabæ fimmtudaginn 31. október kl. 16-18 og eru áhugasamir hvattir til að mæta.