• 21.5.2022, 16:00, Miðgarður

Stjörnuhlaupið

  • Stjörnuhlaupið 2022

Stjörnuhlaupið fer fram í Garðabæ þann 21. maí næstkomandi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 10 km og 4 km, og hefst hlaupið kl. 16:00 frá Miðgarði.

Framundan er hið árlega Stjörnuhlaup sem verður haldið laugardaginn 21. maí nk. Hlaupið hentar vel fyrir alla fjölskylduna og hægt að velja um 2 vegalengdir. Garðbæingar eru einnig hvattir til að koma sér fyrir á hlaupaleiðunum og hvetja þátttakendur til dáða og búa þannig til góða stemningu.  

Allar upplýsingar um hlaupið er að finna á fésbókarsíðu hlaupsins og á vefnum hlaup.is fer fram skráning í hlaupið.

TÍMI OG STAÐSETNINGHlaupið er frá Miðgarði. 10 km hlaupið verður ræst kl. 16:00 og 4 km hlaupið stuttu seinna. Vinsamlegast mætið tímanlega. Athygli er vakin á því að um nýjar hlaupaleiðir er að ræða frá því í fyrra.Boðið er uppá tvær vegalengdir, 4 km og 10 km.

SKRÁNING og AFHENDING GAGNA

Forskráning fer fram á hlaup.is til miðnættis föstudaginn 20. maí nk. Keppnisgögn verða afhent í Miðgarði daginn fyrir hlaup, þ.e föstudaginn 20. maí á milli 16:00 og 19:00. Einnig verður hægt að nálgast hlaupagögn á hlaupadegi í Miðgarði á milli 13:00 - 15:00.

HLAUPALEIÐIR:
Uppdráttur af hlaupaleiðum er að finna á facebook síðu hlaupsins.  Skilti verða við hvern kílómetra í báðum hlaupa leiðum og starfsmenn hlaupsins munu vakta alla helstu staði. Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel leiðina við skráningu.

Stjornuhlaup2022_hlaupaleidir
SALERNI OG FATAGEYMSLA
Boðið verður upp á fatageymslu á Miðgarði en þar er að finna læsta skápa. Fjöldi salerna er að finna í Miðgarði. Einnig verður boðið upp á aðstöðu til þess að klæða sig í og úr keppnisgallanum og skola af sér.

AÐRAR UPPLÝSINGAR
Hlaupið fer að þessi sinni að langmestu leyti fram á stígum bæjarins. Engu að síður þarf á nokkrum stöðum að fara yfir götur og eru þátttakendur því beðnir um að sýna varúð. Brautarvarsla verður víða og við gatnamót þar sem lokað verður fyrir umferð. Tímatöku og brautarvörslu lýkur 80 mínútum eftir að hlaupin eru ræst.