6. jan. 2021

Auglýsing um afreksstyrki ÍTG

Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum frá íþróttafélögum um afreksstyrki fyrir einstaklinga og hópa

Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum frá íþróttafélögum um afreksstyrki fyrir einstaklinga og hópa, skv. afreksstefnu ÍTG grein 3.3, á vef bæjarins.

Íþróttafélög geta sótt um styrki til ÍTG vegna afreka sinna íþróttamanna í samræmi við 2. grein stefnu þessarar. Einungis íþróttagreinar sem viðurkenndar eru af ÍSÍ koma til greina við úthlutun styrkja.
Þeir aðilar, einstaklingar eða lið, sem til greina koma vegna styrkveitinga eru:
a. Þeir sem stunda íþróttir með íþróttafélagi í Garðabæ sem ekki fær beina styrki frá bænum.
b. Þeir sem eiga lögheimili í Garðabæ og stunda íþróttir með íþróttafélagi utan Garðabæjar, enda er viðkomandi íþróttagrein ekki stunduð í Garðabæ.

Umsóknir um afreksstyrki skulu berast til íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar til og með 1. febrúar á þar til gerðum eyðublöðum á „minn Garðabær“.
Með öllum umsóknum skal leggja fram afreksstefnu viðkomandi félags.

Upplýsingar veitir Kári Jónsson, íþróttafulltrúi Garðabæjar í s. 525 8548 eða í t-pósti karijo@gardabaer.is